Þrjú mörk í uppbótartíma í Garðabænum

FH-ingurinn Björn Daníel Stefánsson eltir Stjörnumanninn Róbert Frosta Þorkelsson.
FH-ingurinn Björn Daníel Stefánsson eltir Stjörnumanninn Róbert Frosta Þorkelsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjarnan hafði betur gegn FH, 4:2, í 10. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í Garðabænum í kvöld. 

Stjarnan fer upp fyrir FH og í fimmta sætið með sigrinum en liðið er með 16 stig. FH er í sjötta með 14. 

Björn Daníel Sverrisson kom FH yfir á 27. mínútu leiksins með skemmtilegri afgreiðslu af stuttu færi. 

Þá fylgdi hann á eftir skalla Dusan Brkovic og potaði boltanum í netið með hælnum á lofti. 

Guðmundur Baldvin Nökkvason jafnaði metin á 40. mínútu með frábærri afgreiðslu í hægra hornið utan teigs, 1:1. 

Óli Valur Ómarsson kom Stjörnumönnum yfir á 82. mínútu með stæl. Þá lék hann á mann og annan í vörn FH og smellti honum í vinstra hornið. Þetta var frábært mark og Stjarnan var komin yfir, 2:1. 

Þrjú mörk í uppbótartíma

Baldur Logi Guðlaugsson kom Stjörnunni í 3:1 á fjórðu mínútu uppbótartímans eftir flotta sendingu frá Róberti Frosta Þorkelssyni. 

Björn Daníel skoraði hins vegar sitt annað mark á sjöttu mínútu uppbótartímans þegar hann potaði fyrirgjöf Kjartans Kára í netið, 3:2. 

Á sömu mínútunni skoraði Emil Atlason hins vegar fjórða mark Stjörnunnar með góðri utanfótarafgreiðslu, 4:2, og sigur Stjörnunnar var staðreynd. 

Stjarnan heimsækir HK í næstu umferð en FH fær Fylki í heimsókn. 

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Stjarnan 4:2 FH opna loka
90. mín. Átta mínútum bætt við!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert