Yfirlýsing frá Vestra

Vestri.
Vestri. mbl.is/Óttar Geirsson

Knattspyrnudeild Vestra hefur gefið út yfirlýsingu vegna niðurstöðu KSÍ í sambandi við formlega kvörtun félagsins í tengslum við meint kynþáttaníð í leik Vestra og Fylkis í Bestu deild karla í síðustu viku.

Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, sakaði leikmenn Fylkis um kynþáttaníð í garð leikmanna Vestra í 3:2-sigri Fylkis á Fylkisvelli þann 18. júní. Í kjölfarið kvartaði Vestri formlega til knattspyrnusambandsins en sambandið gaf út í gær að ekki verði aðhafst frekar í málinu þar sem engin sönnunargögn liggja fyrir.

Yfirlýsing Vestra er hér að neðan.

Knattspyrnusamband Íslands hefur komist að niðurstöðu vegna atviks í leik Fylkis og Vestra þann 18. júní sl. Í svörum sambandsins segir: „Það er niðurstaða skrifstofu að ókleift sé annað en að láta staðar numið og aðhafast ekki frekar.”

Knattspyrnudeild Vestra stendur við fyrri yfirlýsingu og telur ekki bara mikilvægt heldur nauðsynlegt að bregðast við atvikum sem þessum. Vestri unir niðurstöðunni og ber fullt traust til sambandsins við úrlausn slíkra mála.

Knattspyrnudeild Vestra hvetur til þess að umræðu um mál sem þessi sé haldið á lofti og mætt af virðingu með opið samtal og fræðslu að leiðarljósi.

Félagið mun ekki tjá sig frekar um málavexti.

Með vinsemd og virðingu,

Knattspyrnudeild Vestra

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert