Fréttamaður RÚV, Gunnar Birgisson, greinir frá því að X-síðu sinni að Jason Daði Svanþórsson, kantmaður Breiðabliks, sé á förum frá félaginu. Líklegur áfangastaður er England að sögn Gunnars.
Jason Daði verður 25 ára á gamlársdag en hann hefur verið einn albesti leikmaður Bestu deildar karla frá komu sinni úr Aftureldingu haustið 2020.
Jason verður samningslaus í lok tímabilsins og líklega þarf Breiðablik að selja hann núna vilji félagið ekki missa hann ókeypis frá sér í lok tímabils.
Jason Daði í atvinnumennsku.
— Gunnar Birgisson (@grjotze) June 27, 2024
Einn besti leikmaður Íslandsmótsins síðustu ár er að kveðja Breiðablik, líklegur áfangastaður er England. pic.twitter.com/dT8kz4AuN9