Þessar eiga að gulltryggja EM-sætið

Íslenska landsliðið fagnar sigrinum mikilvæga á Austurríki fyrr í þessum …
Íslenska landsliðið fagnar sigrinum mikilvæga á Austurríki fyrr í þessum mánuði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, tilkynnti í dag 23 manna hóp fyrir tvo síðustu leikina í undankeppni EM, gegn Þýskalandi og Póllandi dagana 12. og 16. júlí.

Íslenska liðið þarf þrjú stig úr þessum tveimur leikjum til að gulltryggja sæti sitt á EM en gæti náð takmarkinu þó það fái eitt eða jafnvel ekkert stig úr leikjunum.

Bryndís Arna Níelsdóttir og Natasha Anasi snúa aftur í hópinn eftir meiðsli, í stað Ólafar Sigríðar Kristinsdóttur og Ástu Eirar Árnadóttur. Ólöf sleit krossband í hné í síðustu viku.

Hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:
11/0 Telma Ívarsdóttir, Breiðabliki
11/0 Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Bayern München
  5/0 Fanney Inga Birkisdóttir, Val

Varnarmenn:
126/11 Glódís Perla Viggósdóttir, Bayern München
  63/0  Ingibjörg Sigurðardóttir, Duisburg
  39/1  Guðrún Arnardóttir, Rosengård
  30/0  Guðný Árnadóttir, Kristianstad
  11/1  Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Bröndby
    5/1  Natasha Anasi, Brann
    0/0  Kristín Dís Árnadóttir, Bröndby

Miðjumenn:
45/5 Alexandra Jóhannsdóttir, Fiorentina
41/9 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Leverkusen
39/5 Selma Sól Magnúsdóttir, Nürnberg
16/1 Hildur Antonsdóttir, Fortuna Sittard
10/1 Berglind Rós Ágústsdóttir, Val
  0/0 Katla Tryggvadóttir, Kristianstad

Sóknarmenn:
42/6 Sandra María Jessen, Þór/KA
38/10 Sveindís Jane Jónsdóttir, Wolfsburg
38/6 Hlín Eiríksdóttir, Kristianstad
19/2 Amanda Andradóttir, Val
15/2 Diljá Ýr Zomers, OH Leuven
  6/1 Bryndís Arna Níelsdóttir, Växjö
  1/0 Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, Nordsjælland

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert