Olgeir Sigurgeirsson hefur látið af störfum sem aðstoðarþjálfari karlaliðs Fylkis í Bestu deild karla í fótbolta. Olgeir hefur starfað sem aðstoðarþjálfari Rúnars Páls Sigmundssonar síðan snemma árs 2022.
Félagið tilkynnir brotthvarf Olgeirs á heimasíðu Fylkis og þakkar Olgeiri fyrir gott samstarf. Einnig er tekið fram að leit að eftirmanni sé þegar hafin.
Olgeir lék lengst af á sínum ferli fyrir Breiðablik en hann er Eyjamaður að upplagi og hóf ferilinn hjá ÍBV.