Fjölnir og Keflavík gerðu markalaust jafntefli í 11. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í Grafarvoginum í kvöld.
Fjölnismenn eru í toppsæti deildarinnar með 24 stig en Keflavík er í áttunda sæti með 12 stig.
Þá vann Þór Akureyri langþráðan heimasigur þegar að Akureyrarliðið sigraði Gróttu, 3:1.
Pétur Theódór Árnason kom Gróttu yfir í fyrri hálfleik en í þeim seinni skoruðu Ragnar Óli Ragnarsson, Kristófer Kristjánsson og Rafael Victor mörk Þórs.
Þór er í sjöunda sæti með 13 stig en Grótta er í tíunda sæti með tíu.