Tindastóll og Stjarnan gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leik 12. umferðar Bestu deildar kvenna á Sauðárkróki í dag.
Stjarnan er með 13 stig í sjötta sæti deildarinnar og Tindastóll er með 11 stig í áttunda sætinu.
Snemma leiks fékk Tindastóll vítaspyrnu. Þá braut Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, á Jordyn Rhodes í teig Stjörnukvenna og víti dæmt.
Á punktinn steig Gwendolyn Mummert en Erin McLeod varði frá henni.
Tindastóll var betri aðilinn í leiknum en inn vildi boltinn ekki.
Tindastóll mætir Fylki í Árbænum í næsta leik en Stjarnan fær Breiðablik í heimsókn.