Grindavík náði í ótrúlegt stig gegn Þór á Akureyri þegar að liðin gerðu jafntefli, 2:2, í 1. deild karla í knattspyrnu í dag.
Grindavík er í fjórða sæti með 17 stig en Þór er í sjötta sæti með 14 stig.
Kwame Quee kom Grindavík yfir á fyrstu mínútum leiksins en á 54. mínútu jafnaði Rafael Victor metin, 1:1.
Eric Vales fékk rautt spjald á 71. mínútu í liði Grindavíkur og á 77. mínútu kom Rafael Victor Þór yfir, 2:1.
Nuno Malheiro fékk einnig rautt spjald í liði Grindavíkur á 84. mínútu og gestirnir þar með tveimur færri.
Þrátt fyrir það jafnaði Dagur Ingi Hammer Gunnarsson metin fyrir Grindavík undir lok leiks og tryggði gestunum magnað stig.