Hafa verið að hlusta á Meistaradeildarlagið

Víkingar mæta Shamrock Rovers annað kvöld.
Víkingar mæta Shamrock Rovers annað kvöld. mbl.is/Óttar

Íslands- og bikarmeistarar Víkings úr Reykjavík mæta írska liðinu Shamrock Rovers í fyrri leik liðanna í 1. umferð undankeppni Meistaradeildar karla í knattspyrnu á Víkingsvellinum annað kv0ld. 

Leikmenn sem og þjálfarar Víkinga eru spenntir fyrir leiknum sakvæmt Arnari Gunnlaugssyni þjálfara og hafa verið að hlusta á Meistaradeildarlagið, en það verður spilað fyrir leikinn annað kvöld. 

„Við höfum aðeins verið að hlusta á Meistaradeildarlagið inni. Það verður geggjað að heyra það merka lag rétt fyrir upphaf leiks. 

Ég trúi ekki öðru en að allir séu spenntir.“ 

Þannig á það að vera

Arnar bætti við að verkefninu fylgir óvissa. 

„Þetta er öðruvísi þar sem við þekkjum ekki andstæðinginn eða leikmenn liðsins fyrir leik. +

Við rennum þó ekki blint í sjóinn því það eru ágætis greiningar í gangi þessa dagana. Þetta verður erfitt verkefni, þannig á það að vera í Meistaradeildinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert