Valur skoraði á níundu mínútu uppbótartímans

Valur og Vllaznia frá Albaníu skildu jöfn, 2:2, í fyrri leik liðanna í 1. umferð Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta á Hlíðarenda í kvöld. Liðin mætast í Albaníu í seinni leiknum eftir viku.

Varamaðurinn Lúkas Logi Heimisson tryggði Val jafnefni með marki í uppbótartíma. Sigurvegarinn í einvíginu mætir St. Mirren frá Skotlandi í næstu umferð.

Valsmenn byrjuðu betur og Jónatan Ingi Jónsson og Guðmundur Andri Tryggvason fengu báðir færi á fyrstu sex mínútunum. Jónatan skaut framhjá við vítateigslínuna og Kristi Qarri í marki gestanna varði vel frá Guðmundi þegar hann slapp inn fyrir vörn Vllaznia.

Qarri kom hins vegar engum vörnum við á 12. mínútu er Guðmundur skoraði fyrsta mark leiksins með góðri afgreiðslu úr teignum eftir sendingu frá Sigurði Agli Lárussyni.

Jónatan Ingi Jónsson í baráttu við Albanann Melos Bahrami á …
Jónatan Ingi Jónsson í baráttu við Albanann Melos Bahrami á Hlíðarenda í kvöld. mbl.is/Arnþór

Ardit Krymi jafnaði á 23. mínútu, með fyrstu alvörutilraun gestanna, með skalla úr teignum eftir sendingu frá Amir Kahrimanovic úr aukaspyrnu. Var markið gegn gangi leiksins.

Eftir markið jafnaðist leikurinn töluvert og leit ekki annað gott færi dagsins ljós það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og voru hálfleikstölur því 1:1.

Seinni hálfleikurinn fór rólega af stað en Kristinn Freyr Sigurðsson var hársbreidd frá því að koma Val aftur yfir á 59. mínútu er hann skaut í stöngina með flottu skoti á lofti utan teigs. Gylfi Þór Sigurðsson átti flott skot utan teigs á 76. mínútu en Qarri var snöggur niður og sló boltann frá.

Ardit Deliu fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 82. mínútu og voru Valsmenn því manni fleiri á lokakaflanum.

Þrátt fyrir það kom varamaðurinn Kevin Dodaj gestunum yfir þremur mínútum síðar með langskoti eftir að Valsmenn misstu boltann á hættulegum stað. 

Stefndi allt í útisigur en Lúkas Logi Heimisson jafnaði á níundu mínútu uppbótartímans með skalla eftir horn og varð jafntefli niðurstaðan. 

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Valur 2:2 Vllaznia opna loka
90. mín. Lúkas Logi Heimisson (Valur) á skalla sem fer framhjá Jónatan með hornið en Lúkas skallar framhjá úr fínu færi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert