Hallbera og Sara heiðraðar af UEFA

Hallbera Guðný Gísladóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með …
Hallbera Guðný Gísladóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með íslenska landsliðinu gegn því brasilíska. mbl.is/Golli

Hallbera Guðný Gísladóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir voru heiðraðar af UEFA, Knattspyrnusambandi Evrópu, fyrir leik Íslands og Þýskalands í undankeppni EM kvenna í fótbolta á Laugardalsvelli í kvöld.

Voru þær heiðraðar fyrir það afrek að hafa leikið 100 landsleiki fyrir Íslands hönd. KSÍ hafði þegar heiðrað leikmennina fyrir að leika 100 A-landsleiki, en það var gert á 74. ársþingi sambandsins sem haldið var árið 2020.

Sara Björk Gunnarsdóttir er fædd árið 1990 og er því 34 ára gömul á þessu ári. Hennar fyrsti A-landsleikur var gegn Slóveníu árið 2007 í undankeppni EM 2009. Á ferli sínum með A-landsliðinu lék hún 145 leiki og skoraði í þeim 24 mörk, en hún var lengi fyrirliði liðsins.

Hallbera Guðný Gísladóttir var á 22. aldursári þegar hún lék sinn fyrsta A-landsleik árið 2008, gegn Póllandi á Algarve-mótinu. Hallbera, sem er fædd 1986, lék 131 landsleik fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim 3 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert