Leikur Íslands flautaður af

Byrjunarlið Íslands í dag.
Byrjunarlið Íslands í dag. Ljósmynd/KSÍ

U19 ára landslið Íslands og Svíþjóðar áttust við í alþjóðlegu móti kvenna í fótbolta í Svíþjóð í dag en ekki tókst að klára leikinn vegna veðurs.

Var leikurinn flautaður af eftir klukkutíma en völlurinn var á floti og óleikfær vegna rigningar.

Var staðan 1:1 þegar leikurinn var flautaður af. Sænska liðið var fyrr til þess að skora en Emelía Óskarsdóttir jafnaði fyrir Ísland.

Íslenska liðið tapaði fyrir Noregi, 2:1, í fyrri leik sínum á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert