Skipt um dómara eftir kvörtun frá Val

Valsmenn spiluðu Evrópuleik á móti liði Vllaznia frá Albaníu á …
Valsmenn spiluðu Evrópuleik á móti liði Vllaznia frá Albaníu á Hlíðarenda og mæta þeim aftur á fimmtudaginn. mbl.is/Arnþór

Knattspyrnufélagið Valur lagði fram kvörtun til UEFA og því eru komnir nýir dómarar fyrir seinni leikinn í einvígi Vals gegn albanska liðinu Vllaznia í 1. um­ferð Sam­bands­deild­ar­inn­ar í fót­bolta.

Þetta tilkynnti Vllaznia á samfélagsmiðlinum X í dag en nýju dómarar leiksins eru frá Ítalíu. Aðaldómarinn verður Simone Sozza og honum til aðstoðar verða Davide Imperiale og Filippo Bercigli, fjórði dómarinn verður Antonio Rapuano.

Kamal Umudlu frá Aserbaídsjan átti upphaflega að dæma leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert