Eina í stöðunni að klára færið

Sveindís Jane í eldlínunni í kvöld.
Sveindís Jane í eldlínunni í kvöld. Ljósmynd/Alex Nicodim

Sveindís Jane Jónsdóttir var hetja íslenska landsliðsins í fótbolta er það lagði Pólland, 1:0, í lokaleik sínum í undankeppni Evrópumótsins í Sosnowiec í kvöld. Hún skoraði sigurmarkið á 32. mínútu.

„Það er gaman að vinna en mér fannst við geta gert betur. Við skoðum þennan leik og bætum það sem þarf að bæta. Sex stig úr þessum glugga er frábært,“ sagði Sveindís við RÚV eftir leik.

Hún skoraði markið eftir einstaklingsframtak, vann boltann af varnarmanni Pólverja á miðjum vellinum, tók á rás og skilaði boltanum í netið.

„Ég sá að hún var svolítið hæg á boltanum og ég náði að pota í hann með löngu leggjunum. Það eina í stöðunni var að klára færið. Ég setti boltann aðeins til hliðar og skilaði honum í nærhornið.“

Ísland fékk 13 stig úr sex leikjum í riðlinum og tapaði aðeins einum leik, gegn Þýskalandi á útivelli. Annað sætið er niðurstaðan og sæti á lokamóti EM næsta sumar.

„Ég held þetta sé mjög gott hjá okkur. Við töpum einum leik í sterkum riðli. Við vorum inni í öllum leikjum og vorum góðar. Það er frábær niðurstaða að enda í öðru sæti og vinna Þýskaland,“ sagði hún.

Sveindís var með vafning um lærið allan leikinn. „Þetta er bara fyrir útlitið. Ég lít út fyrir að vera geðveikt sterk,“ sagði Sveindís með bros á vör.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert