Víkingar mæta írska knattspyrnufélaginu Shamrock Rovers í seinni leik liðanna í 1. umferð Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Um 100 stuðningsmenn liðsins fylgdu liðinu til Írlands og þeir eru nú saman komnir að syngja stuðningsmannalög og undirbúa sig fyrir leikinn.
Ef þú færð ekki gæsahúð af þessu þá ertu ekki Víkingur og það er allt í góðu.
— Víkingur (@vikingurfc) July 16, 2024
EN ÞAÐ ER PARTÝ Í DUBLIN. KOMA SVOOOO ÓÓ. pic.twitter.com/3YZUbPQkLF
Fyrri leikur liðanna endaði 0:0 í Fossvogi svo víkingar þurfa að vinna í kvöld til þess að komast áfram.
https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2024/07/15/verdum_ad_bera_virdingu_fyrir_thessu_verkefni/
Okkar allra veikustu og bestu eru mættir til Dublin ❤️🖤 pic.twitter.com/NzvRD9e7Vx
— Víkingur (@vikingurfc) July 16, 2024