Félagaskiptin í íslenska fótboltanum - konur

Íris Una Þórðardóttir er komin til Fylkis í láni frá …
Íris Una Þórðardóttir er komin til Fylkis í láni frá Þrótti en hún lék áður með Fylki 2020 og 2021. mbl.is/Kristinn Magnússon

Opnað var fyrir félagaskiptin í íslenska fótboltanum í dag, miðvikudaginn 17. júlí, og íslensku félögin í tveimur efstu deildum kvenna geta fengið til sín leikmenn næstu vikurnar.

Félög í Bestu deild kvenna geta fengið til sín leikmenn til 13. ágúst en félög í 1. deild kvenna (Lengjudeildinni) til 31. júlí. Félagaskiptaglugginn í 2. deild kvenna hefur verið opinn allt tímabilið.

Mbl.is fylgist að vanda með öllum breytingum á liðum í þessum tveimur deildum og þessi frétt er uppfærð jafnt og þétt eftir því sem félagaskiptin eru staðfest.

Hér má sjá öll staðfest félagaskipti í Bestu deild kvenna og 1. deild kvenna (Lengjudeildinni). Fyrst nýjustu skiptin og síðan alla leikmenn sem hafa komið og farið frá hverju liði fyrir sig frá því síðasta félagaskiptaglugga var lokað í vor. Dagsetning segir til um hvenær viðkomandi er löglegur með nýju liði.

Helstu félagaskiptin síðustu daga:
17.7. Íris Una Þórðardóttir, Þróttur R. - Fylkir (lán)
10.7. Hanna Kallmaier, Valur - ÍH
10.7. Hildur Laila Hákonardóttir, Þróttur R. - KR (lán)
10.7. Sóley María Davíðsdóttir, HK - KR (lán)

Félagaskiptin hjá hverju félagi fyrir sig eru sem hér segir. Þar sem dagsetningu vantar er ekki búið að ganga formlega frá félagaskiptunum.

BESTA DEILD KVENNA:

BREIÐABLIK
Þjálfari: Nik Chamberlain.
Staðan 17. júlí: 1. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

Hanna Kallmaier, þýski miðjumaðurinn sem lék með ÍBV í þrjú …
Hanna Kallmaier, þýski miðjumaðurinn sem lék með ÍBV í þrjú ár og fór síðan í Val en slasaðist illa síðasta sumar er komin til ÍH í 2. deildinni. mbl.is/Kristinn Magnússon

VALUR
Þjálfari: Pétur Pétursson.
Staðan 17. júlí: 2. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Amanda Andradóttir í Twente (Hollandi)
10.7. Hanna Kallmaier í ÍH

ÞÓR/KA
Þjálfari: Jóhann Kristinn Gunnarsson.
Staðan 17. júlí: 3. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

FH
Þjálfari: Guðni Eiríksson.
Staðan 17. júlí: 4. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
3.7. Sara Montoro í ÍH (lán)

VÍKINGUR R.
Þjálfari: John Henry Andrews.
Staðan 17. júlí: 5. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Sigdís Eva Bárðardóttir í Norrköping (Svíþjóð)
6.7. Dagbjört Ingvarsdóttir í Völsung (lán)

STJARNAN
Þjálfari: Jóhannes Karl Sigursteinsson.
Staðan 17. júlí: 6. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

TINDASTÓLL
Þjálfari: Halldór Jón Sigurðsson
Staðan 17. júlí: 7. sæti.

Komnar:
Maria del Mar frá Europa (Spáni)

Farnar:
Gwendolyn Mummert

ÞRÓTTUR R.
Þjálfari: Ólafur Helgi Kristjánsson.
Staðan 17. júlí: 8. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
17.7. Íris Una Þórðardóttir í Fylki (lán)
10.7. Hildur Laila Hákonardóttir í KR (lán)

KEFLAVÍK
Þjálfari: Jonathan Glenn
Staðan 17. júlí: 9. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

FYLKIR
Þjálfari: Gunnar Magnús Jónsson.
Staðan 17. júlí: 10. sæti.

Komnar:
17.7. Íris Una Þórðardóttir frá Þrótti R. (lán)

Farnar:
Engar

1. DEILD KVENNA:

FHL
Þjálfari: Björgvin Karl Gunnarsson.
Staðan 17. júlí: 1. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

AFTURELDING
Þjálfari: Perry John Mclachlan.
Staðan 17. júlí: 2. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

GRÓTTA
Þjálfari: Matthías Guðmundsson.
Staðan 17. júlí: 3. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

ÍA
Þjálfari: Skarphéðinn Magnússon.
Staðan 17. júlí: 4. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

HK
Þjálfari: Guðni Þór Einarsson.
Staðan 17. júlí: 5. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
10.7. Sóley María Davíðsdóttir í KR (lán)

ÍBV
Þjálfari: Jón Ólafur Daníelsson.
Staðan 17. júlí: 6. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

GRINDAVÍK
Þjálfari: Anton Ingi Rúnarsson.
Staðan 17. júlí: 7. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

FRAM
Þjálfari: Óskar Smári Haraldsson.
Staðan 17. júlí: 8. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

SELFOSS
Þjálfari: Björn Sigurbjörnsson.
Staðan 17. júlí: 9. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar

ÍR
Þjálfari: Þorleifur Óskarsson.
Staðan 17. júlí: 10. sæti.

Komnar:
Engar

Farnar:
Engar


Félagaskipti í janúar 2024

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert