Keflavík fær Króata

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Keflavík í 1. deild karla stökk strax á tækifærið þegar félagsskiptaglugginn var opnaður í dag og nældi sér í króatiskan knattspyrnumann.

Mihael Mladen kemur til liðsins frá Radnik Krizevci í heimalandinu en hann er 24 ára framherji en getur líka spilað á kanti og fremst á miðjunni.

Keflavík er í 8. sæti deildarinnar með 15 stig eftir 12 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert