Ungur Húsvíkingur í KR

Jakob Gunnar Sigurðsson er orðinn leikmaður KR.
Jakob Gunnar Sigurðsson er orðinn leikmaður KR. Ljósmynd/KR

Knattspyrnudeild KR hefur gengið frá þriggja ára samningi við Húsvíkinginn unga Jakob Gunnar Sigurðsson. Hann klárar tímabilið með Völsungi og flytur síðan til Reykjavíkur fyrir næstu leiktíð.

Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára gamall hefur Jakob skorað 11 mörk í 12 leikjum með Völsungi í 2. deildinni í sumar.

Hefur hann sprungið rækilega út í ár, því hann var aðeins með eitt mark í sextán deildarleikjum í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert