Breiðablik og Tikvesh frá Norður-Makedóníu eigast við í seinni leik liðanna í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildar karla í knattspyrnu á Kópavogsvelli klukkan 19.15. Fylgst er með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.
Tikvesh er 3:2-yfir eftir fyrri leikinn en sigurliðið mætir FC Drita frá Kósovó í annarri umferð.