Búinn að semja við KR - spilar gegn KR

Alexander Helgi Sigurðarson lýkur þessu tímabili með Breiðabliki en fer …
Alexander Helgi Sigurðarson lýkur þessu tímabili með Breiðabliki en fer síðan í KR. mbl.is/Óttar Geirsson

Knattspyrnumaðurinn Alexander Helgi Sigurðarson hefur samið við KR-inga um að leika með þeim frá og með næsta keppnistímabili en hann mun ljúka yfirstandandi tímabili með Breiðabliki.

Þetta staðfestu Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks og Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði liðsins við mbl.is eftir sigur Blikanna á Tikvesh frá Norður-Makedóníu í undankeppni Sambandsdeildarinnar á Kópavogsvelli í kvöld.

Alexander var þar í byrjunarliði Blikanna og Halldór sagði við mbl.is að hann yrði með liðinu næsta sunnudag þegar það mætir KR í Bestu deildinni, svo framarlega sem hann verður heill heilsu.

Alexander er 28 ára miðjumaður, uppalinn í Breiðabliki, og hefur spilað 10 af 14 leikjum liðsins í Bestu deildinni í ár, níu þeirra í byrjunarliðinu. Fram kom á dögunum að samningar hefðu ekki tekist á milli hans og Breiðabliks um nýjan samning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert