Fer frá Grindavík til Dalvíkur

Hassan Jalloh í leik með HK gegn ÍBV í fyrra.
Hassan Jalloh í leik með HK gegn ÍBV í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ástralski knattspyrnumaðurinn Hassan Jalloh sem hefur leikið með Grindavík í 1. deildinni í ár hefur skipt um félag og er genginn til liðs við Dalvík/Reyni í sömu deild.

Jalloh er 25 ára sóknarmaður sem lék með HK 2022 og 2023 en gekk til liðs við Grindvíkinga fyrir þetta tímabil.

Hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu og hefur skorað eitt mark í níu leikjum, þar af  fimm sinnum verið í byrjunarliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert