Tveir fæddir 2009 á skotskónum fyrir Austfjarðaliðið

Lið KFA.
Lið KFA. Ljósmynd/KFA

Þeir Daníel Michal Grzegorzsson og Nenni Þór Guðmundsson komu inn sem varamenn og skoruðu fyrir KFA í stórsigri liðisins á Ými, 6:0, í bikarkeppni neðrideilda á Reyðarfirði í gær.

KFA komst í átta liða úrslit bikarkeppninnar sem nú er haldin í annað skipti en Víðir úr Garði varð fyrsti bikarmeistarinn á síðasta ári. 

Daníel, sem er enn 14 ára, og Nenni sem er nýorðinn 15 ára komu inn á 59. mínútu leiksins. 

Daníel skoraði fjórða mark KFA á 85. mínútu og Nenni Þór skoraði sjötta og síðasta mark liðsins á annarri mínútu uppbótartímans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert