Adam Ægir lánaður til Ítalíu

Adam Ægir Pálsson er farinn á láni til Ítalíu.
Adam Ægir Pálsson er farinn á láni til Ítalíu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumaðurinn Adam Ægir Pálsson er á leiðinni til Perugia á Ítalíu á lánssamningi frá Val. 

Í leiðinni skrifar Adam Ægir undir nýjan samning hjá íslenska félaginu til lok árs 2026. Félagið greindi frá rétt í þessu. 

Adam gekk í raðir Vals frá Víkingi í Reykjavík fyrir síðustu leiktíð en hann hefur lítið fengið að spila í ár. 

Adam fer á lán til Perugia sem spilar í ítölsku C-deildinni. Það er kaupréttur í lánssamningnum sem gildir út tímabilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert