„Kominn aftur þar sem þetta byrjaði allt“

Jök­ull Andrés­son kemur á láni út tímabilið.
Jök­ull Andrés­son kemur á láni út tímabilið. Ljósmynd/Afturelding

Markmaðurinn Jök­ull Andrés­son er kominn aftur í uppeldisfélagið, Aftureldingu í 1. deild karla í fótbolta, á láni frá Reading á Englandi.

Jök­ull fór til Englands árið 2017 frá Aftureldingu áður en hann spilaði meistaraflokksleik með liðinu. Hann hefur verið að glíma við meiðsli undanfarin ár og hefur verið lánaður til fimm liða frá Reding og spilaði aldrei leik með aðalliðinu.

Hann á einn æfingaleik með íslenska landsliðinu sem var gegn Úganda árið 2022.

Hann var í viðtali á samfélagsmiðlum Aftureldingar þar sem hann sagðist ekki getað verið spenntari.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert