Risaleikur í átta liða úrslitum

KFA-menn heimsækja Augnablik.
KFA-menn heimsækja Augnablik. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Selfoss og Haukar mætast í átta liða úrslitum bikarkeppni neðrideilda karla í knattspyrnu á Selfossi 6. ágúst. 

Dregið var í átta liða úrslitin í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu en fulltrúar KSÍ og fótbolta.net, sem er styrktaraðili mótsins, sáu um dráttinn. 

Selfoss gegn Haukum er stærsti leikurinn en þau eru bæði í 2. deildinni.

Þá fær 3. deildarliðið Augnablik 2. deildarlið KFA í heimsókn. 

3. deildarliðin Vængir Júpíters og Árbær mætast í Grafarvoginum og 3. deildarlið Kára heimsækir Tindastól, sem spilar í 4. deild, á Sauðárkrók. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert