Auðunn Ingi Valtýsson, markmaður Þórs í 1. deild karla í knattspyrnu fór af velli í sjúkrabíl í dag.
Samkvæmt Fotbolti.net lenti hann í samstuði við Þórsara og lá eftir. Hann gat labbað upp í sjúkrabíl eftir leikinn.
Atvikið gerðist á 90. mínútu þegar Þróttur var 1:0 yfir og leikurinn endaði þannig eftir langan uppbótartíma. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson skoraði mark Þróttar á 70. mínútu.
Þróttarar komust upp í fimmta sætið með sigrinum og eru með 18 stig en Þór seig niður í sjöunda sætið með 17 stig.