Sveinn Margeir rotaði Víkingana

Hallgrímur Mar Steingrímsson, með boltann í dag. Danijel Djuric og …
Hallgrímur Mar Steingrímsson, með boltann í dag. Danijel Djuric og Karl Friðleifur Gunnarsson fyrir aftan hann.

KA og Víkingur mættust í seinni leik dagsins í Bestu-deild karla í dag. Leikurinn var í 15. umferðinni og var spilað á KA-vellinum á Akureyri.

Eftir mikla baráttu hafði KA 1:0-sigur. KA er nú með 18 stig og komið í 7. sætið en Víkingur hefur sín 33 og er fimm stigum á undan næstu liðum.

KA er nú með 18 stig og komið í 7. sætið en Víkingur hefur sín 33 og er fimm stigum á undan næstu liðum.

Fyrri hálfleikurinn var markalaus en Víkingar þjörmuðu ágætlega að KA-mönnum lengstum. Gott flæði var í leik þeirra og komu sóknarbylgjurnar eins og öldur inn að marki KA. Heimamenn sluppu fyrir horn, vörðust vel og svo var Steinþór Már Auðunsson mjög öruggur í markinu.

KA fékk þó líklega besta færið þegar Harley Willard skaut boltanum framhjá marki gestanna eftir langt innkast. Viðar Örn Kjartansson var svo dæmdur rangstæður eftir að hafa skorað fyrir KA. Stóð mjög tæpt á þeim dómi og verður málið eflaust skeggrætt af spekingum.

Seinni hálfleikurinn var í mun meira jafnvægi en hvort lið fékk sín færi. Víkingar fengu tvö góð færi um miðjan hálfleikinn en Steinþór Már varði vel í báðum tilvikum. Hinum megin komst Harley Willard í algjört dauðafæri en Pálmi Rafn Arinbjörnsson varði virkilega vel.

Á lokamínútunum voru Víkingarnir öllu ákveðnari en KA varðist ötullega. Það var svo rétt undir lokin sem Sveinn Margeir Hauksson óð í gegn um þrjá Víkinga, kom sér inn í teig og hamraði boltann í netið, 1:0.

Reyndist þetta sigurmarkið en Víkingar reyndu hvað þeir gátu í uppbótatímanum að jafna leikinn.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

HK 1:1 Vestri opna
90. mín. Elvar Baldvinsson (Vestri) fær gult spjald +3.
Þróttur R. 2:1 FH opna
90. mín. Leik lokið Risastór þrjú stig fyrir Þrótt í fallbaráttunni.
Stjarnan 0:1 Breiðablik opna
90. mín. Leik lokið Ekki mjög sannfærandi sigur Blika sem halda fyrsta sætinu í deildinni.
Valur 1:1 Keflavík opna
90. mín. Leik lokið Valskonur vinna dramatískan sigur og jafna Breiðablik að stigum!

Leiklýsing

KA 1:0 Víkingur R. opna loka
90. mín. Elvar Árni Aðalsteinsson (KA) kemur inn á
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert