Kominn heim í Breiðablik

Davíð Ingvarsson.
Davíð Ingvarsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumaðurinn Davíð Ingvarsson er kominn aftur í Breiðablik frá danska liðinu Kolding.

Breiðablik tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum liðsins í dag en Davíð á þegar 93 leiki með Breiðablik í efstu deild.

Davíð er 25 ára gamall vinstri bakvörður og fór út í febrúar á þessu ári en rifti samningi sínum á dögunum. Hann skrifaði undir samning við Breiðablik sem gildir til 2026.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert