Þróttur Gothia Cup meistari

Þróttarastelpurnar lyfta bikarnum.
Þróttarastelpurnar lyfta bikarnum. Ljósmynd/@Throttur08gothiacup

Þróttur er Gothia Cup meistari U17 ára kvenna í knattspyrnu eftir sigur á sænska liðinu Lerums, 3:1, í úrslitaleiknum í Gautaborg í Svíþjóð í dag.

Þróttur vann alla sína leiki á mótinu, sem er eitt stærsta unglingamót sem haldið er í Evrópu ár hvert.

Mörk Þróttar skoruðu Emma Sóley Arnarsdóttir, Iðunn Þórey Hjaltalín og Hildur Hekla Elmarsdóttir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert