Tvö rauð spjöld í sigri Eyjamanna

Oliver Heiðarsson skoraði sigurmark Eyjaliðsins.
Oliver Heiðarsson skoraði sigurmark Eyjaliðsins. mbl.is/Óttar Geirsson

ÍBV vann iðnaðarsigur á nýliðum Dalvíkur/Reynis, 1:0, í 13. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á Hásteinsvelli í dag. 

Eyjamenn eru í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig en Dalvík er í tólfta og neðsta sæti með átta. 

Oliver Heiðarsson skoraði sigurmark Eyjamanna snemma leiks.

Á 42. mínútu fékk Hermann Þór Ragnarson rautt spjald í liði ÍBV en Eyjamenn héldu út þrátt fyrir það. 

Matheus Bissi Da Silva fékk síðan rautt í liði Dalvíkur/Reynis undir blálok leiks. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert