Lygileg dramatík á Selfossi

Jakob Gunnar Sigurðsson skoraði tvennu fyrir Völsung.
Jakob Gunnar Sigurðsson skoraði tvennu fyrir Völsung. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Völsungur vann ótrúlegan sigur á Selfossi, 4:3, í 13. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu á Selfossi í dag. 

Völsungur er kominn í fjórða sæti deildarinnar með 22 stig en Selfoss er á toppnum með 29.

Völsungur jafnaði metin á annarri mínútu uppbótartíma seinni hálfleik og skoraði sigurmarkið mínútu síðar. 

Gonzalo Zamorano kom Selfossi yfir á 6. mínútu leiksins en Ívar Breki Sigurðsson fékk rauttspjald í liði Selfyssinga á 19. mínútu. 

Jakob Gunnar Sigurðsson jafnaði metin fyrir Völsung á 50. mínútu og Húsavíkurliðið komst yfir á 54. mínútu með sjálfsmarki Selfoss, 2:1. 

Reynir Freyr Sveinsson jafnaði metin á 79. mínútu og Selfoss komst aftur yfir með sjálfsmarki Völsungs á 79. mínútu, 3:2. 

Jakob Gunnar jafnaði metin síðan í 3:3 og sigurmarkið skoraði Óskar Ásgeirsson mínútu síðar, 4:3. 

Óskar Ásgeirsson skoraði sigurmarkið.
Óskar Ásgeirsson skoraði sigurmarkið. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert