Víkingur Ólafsvík hafði betur gegn KFA, 2:0, í 13. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í Ólafsvík í dag.
Með sigrinum fór Víkingur fyrir ofan KFA í töflunni en nú er liðið með 26 stig í öðru sæti en KFA er sæti neðar með stigi minna.
Björn Axel Guðjónsson kom Víkingi yfir á 20. mínútu leiksins og Eyþór Örn Eyþórsson bætti við seinna markinu á 59. mínútu.