Nóg að gera hjá Orra í Íslendingaslagnum

Orri Steinn Óskarsson fagnar marki sínu í dag.
Orri Steinn Óskarsson fagnar marki sínu í dag. Ljósmynd/FC Köbenhavn

Orri Steinn Óskarsson skoraði fyrra mark FC Köbenhavn í sigri liðsins á Lyngby, 2:0, í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í Lyngby í dag. 

Orri kom FC Köbenhavn yfir á sjöunda mínútu leiksins en Mohamed Elyounoussi bætti við seinna marki liðsins á 30. mínútu. 

Orri hélt að hann hafði komið FC Köbenhavn í 3:0 á 38. mínútu en mark hans var síðan tekið af vegna rangstöðu. 

Kolbenn Birgir Finnsson og Sævar Atli Magnússon voru báðir í byrjunarliði Lyngby en Rúnar Alex Rúnarsson er varamarkvörður FC Köbenhavn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert