Knattspyrnumaðurinn Símon Logi Thasaphong er genginn til liðs við Njarðvík á láni frá Grindavík.
Samningur Símonar rennur síðan út eftir tímabilið en bæði lið leika í 1. deildinni. Hann er uppalinn hjá Grindavík og hefur ávallt spilað með liðinu.
Símon hefur komið við sögu í ellefu af þrettán leikjum Grindavíkur í fyrstu deildinni á tímabilinu. Þá hefur hann skoraði eitt mark.