Hermann Hreiðarsson í bann

Hermann Hreiðarsson er kominn í eins leiks bann.
Hermann Hreiðarsson er kominn í eins leiks bann. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hermann Hreiðarsson, þjálfari karlaliðs ÍBV, verður í banni þegar að ÍBV heimsækir Þór Akureyri í næstu umferð 1. deildarinnar í fótbolta næstkomandi laugardag. 

Hermann var úrskurðaður í eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjald aga- og úrskurðarnefnd KSÍ í dag. 

Þá verður Blikakonan Andrea Rut Bjarnadóttir í banni þegar að Breiðablik tekur á móti Fylki í Bestu deildinni næstkomandi föstudag. 

KA-maðurinn Hans Viktor Guðmundsson verður í banni í leiknum gegn KR í Bestu deildinni næsta mánudag. 

Þau tvö eru í banni vegna fjögurra gulra spjalda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert