Alexander Helgi Sigurðarson verður mjög líklega ekki klár fyrir fyrri leik Breiðabliks gegn FC Drita frá Kósovó í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta á Kópavogsvelli annað kvöld.
Þetta staðfesti Halldór Árnason þjálfari Kópavogsliðsins í samtali við mbl.is.
Alexander meiddist í leiknum gegn KR síðastliðinn sunnudag, en hann gengur einmitt í raðir KR eftir tímabilið.
Annars eru allir leikmenn Breiðabliks klárir í slaginn annað kvöld.
Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is.