Ásgeir Börkur tekur skóna af hillunni

Ásgeir Börkur Ásgeirsson
Ásgeir Börkur Ásgeirsson Eggert Jóhannesson

Ásgeir Börkur Ásgeirsson snýr aftur í fótboltann en hann hefur gengið til liðs við 3. deildarlið Hvíta riddarans. Ásgeir Börkur lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil.

Ásgeir Börkur er þekktastur fyrir feril sinn hjá Fylki en miðjumaðurinn hefur að auki leikið með Selfossi, HK og sem atvinnumaður í Svíþjóð og Noregi. Á síðasta tímabili lék Ásgeir fyrir ÍR sem tryggði sér sæti í 1. deild.

Hvíti riddarinn er í botnsæti 3. deildar með ellefu stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert