Breki á leið til Danmerkur?

Breki Baldursson
Breki Baldursson Ljósmynd/Kristinn Steinn

Miðjumaðurinn ungi, Breki Baldursson, gæti verið á förum frá Fram til Esbjerg í Danmörku. Breki var til reynslu hjá félaginu á dögunum og heillaði forsvarsmenn liðsins að sögn Daða Guðmundssonar, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Fram.

Fótbolti.net greinir frá því að Fram sé í viðræðum við Esbjerg um sölu á Breka en hann er einungis sautján ára gamall.

Breki á að baki fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands ásamt tæplega þrjátíu meistaraflokksleikjum fyrir Fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert