Jafntefli í Úlfarsárdal

Erla Karitas Jóhannesdóttir, til vinstri, skoraði fyrir ÍA í kvöld.
Erla Karitas Jóhannesdóttir, til vinstri, skoraði fyrir ÍA í kvöld. mbl.is/Óttar Geirsson

Fram og ÍA skildu jöfn, 1:1, þegar liðin mættust í tólftu umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu í Úlfarsárdal í kvöld.

Erla Karitas Jóhannesdóttir kom Skagakonum yfir strax á 6. mínútu en Sylvía Birgisdóttir jafnaði metin fyrir Fram á 75. mínútu.

Liðin eru bæði með 16 stig í deildinni en Fram er samt í fimmta sæti og ÍA í því sjöunda. Á milli þeirra er ÍBV sem er líka með 16 stig en á leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert