Kristófer Ingi Kristinsson, sóknarmaður Breiðabliks, lék ekki með Breiðablik gegn Drita frá Kósóvó í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar karla í fótbolta í kvöld.
Hann er á meðal áhorfenda á leiknum sem nú stendur yfir á Kópavogsvelli og samkvæmt heimildum mbl.is er það vegna þess að hann var ekki skráður til leiks.
Kristófer hefur verið drjúgur í sóknarleik Blika og skoraði m.a. í útileiknum gegn Tikvesh í fyrstu umferðinni, og hann átti drjúgan þátt í markinu sem tryggði Blikunum sæti í annarri umferðinni.