16 ára skoraði sigurmark ÍBV

Natalie Viggiano lék allan leikinn fyrir ÍBV.
Natalie Viggiano lék allan leikinn fyrir ÍBV. mbl.is/Arnþór Birkisson

ÍBV vann sterkan útisigur á Gróttu, 1:0, í 12. umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á heimavelli Gróttu á Seltjarnarnesi í kvöld. 

ÍBV komst upp fyrir Gróttu með sigrinum. Nú er Eyjaliðið með 19 stig í þriðja sæti en Grótta er í fjórða sæti með jafnmörg stig en verri markatölu. 

Sigurmark Eyjakvenna skoraði Ágústa María Valtýsdóttir á 73. mínútu leiksins, en hún er aðeins 16 ára gömul.

Telusila Mataaho Vunipola fékk rautt spjald í liði ÍBV 10 mínútum síðar en Eyjaliðið hélt út. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert