Markalaust hjá botnliðunum

Selfyssingar eru fjórum stigum frá öruggu sæti.
Selfyssingar eru fjórum stigum frá öruggu sæti. Ljósmynd/Kristinn Steinn

ÍR og Selfoss gerðu markalaust jafntefli í botnslag 1. deildar kvenna í knattspyrnu í Seljahverfinu í kvöld. 

ÍR-liðið er í neðsta sæti deildarinnar með fimm stig en Selfoss er í næstneðsta sæti með tíu stig. 

Grindavík er síðan í áttunda sæti með 14 stig og Fram og ÍA í sjötta og sjöunda sæti með 16 stig. 

ÍR mætir Gróttu á útivelli í næsta leik en Selfoss heimsækir ÍA. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert