Birnir skoraði sigurmarkið

Birnir Snær Ingason skoraði sigurmark Halmstad.
Birnir Snær Ingason skoraði sigurmark Halmstad. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Birnir Snær Ingason skoraði sigurmark Halmstad í sigri á Värnamo í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta á heimavelli Halmstad í samnefndri borg í dag. 

Sigurmark Birnis kom á 63. mínútu og var hann síðan tekinn af velli tveimur mínútum síðar. 

Gísli Eyjólfsson lék allan leikinn fyrir Halmstad sem er í tíunda sæti deildarinnar með 21 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert