Eyjamenn gerðu góða ferð norður

Sverrir Páll Hjaltested skoraði tvívegis fyrir ÍBV.
Sverrir Páll Hjaltested skoraði tvívegis fyrir ÍBV. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

ÍBV vann sterkan útisigur á Þór Akureyri, 3:0, í 1. deild karla í knattspyrnu á Akureyri í dag. 

Eyjamenn eru komnir upp í annað sætið með 25 stig, sex stigum á eftir toppliði Fjölnis. Þórsarar eru í sjöunda sæti með 17 stig. 

Sverrir Páll Hjaltested kom ÍBV yfir á 29. mínútu og Oliver Heiðarsson tvöfaldaði forystu liðsins á 49. 

Sverrir Páll var síðan aftur á ferðinni á fjórðu mínútu uppbótartímans og innsiglaði sannfærandi 3:0-sigur. 

Þór heimsækir Keflavík í næstu umferð en ÍBV fær Njarðvík í heimsókn um Verslunarmannahelgina. 

Hart barist í leik dagsins.
Hart barist í leik dagsins. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka