Leik Vestra gegn FH frestað

FH vann,3:2, síðast þegar liðin mættust.
FH vann,3:2, síðast þegar liðin mættust. Eyþór Árnason

Leik FH gegn Vestra í Bestu deild karla í knattspyrnu hefur verið seinkað en hann átti að byrja klukkan 14.00 á Ísafirði í dag.

Mikil þoka er á Ísafirði og leiknum hefur verið seinkað um að lámarki klukkustund því flugi FH var frestað.

Vestri er enn að leita af fyrsta sigrinum á nýja heimavelli þeirra en liðið tapaði 5:1 gegn Val í fyrsta leik liðsins þar, tapaði, 3:1, gegn Fram, gerði 2:2 jafntefli gegn Breiðabliki og tapaði síðast 2:0 gegn KA.

Vestri er í 11. og næst neðsta sæti með 12 stig en FH er í fjórða sæti með 25 stig.

Uppfært:

Flugi FH var aftur frestað og nýr leiktími er klukkan 16.00 á morgun samkvæmt KSÍ.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert