Theódór Elmar heldur áfram

Theódór Elmar Bjarnason er ekki með slitið krossband.
Theódór Elmar Bjarnason er ekki með slitið krossband. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Knattspyrnumaðurinn Theodór Elmar Bjarnason, miðjumaður KR, er ekki með slitið krossband.

Þetta staðfesti Theódór Elmar í samtali við Vísi

Í gær var greint frá því að Theódór Elmar hefði orðið fyrir hnémeiðslum á æfingu hjá KR. Óttast var að um krossbandsslit væri að ræða en svo er ekki. 

Hann hafði gefið það út í samtali við 433.is að ef um krossbandsslit væri að ræða væri ferilinn hans líklega á enda. 

Svo er ekki og mun hann vera frá í tvær til sex vikur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert