Tvær þrennur er Austfirðingar burstuðu HK

Emma Hawkins skoraði þrennu gegn HK í dag.
Emma Hawkins skoraði þrennu gegn HK í dag. mbl.is/Eyþór

FHL fór afar léttilega með HK, 6:1, í  12. umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði í dag. 

FHL er langefst með 31 stig eftir tólf leiki en liðið hefur unnið tíu þeirra, gert eitt jafntefli og tapað einu leik. 

HK er í fimmta sæti deildarinnar með 17 stig. 

FHL komst í 6:0 en Emma Hawkins og Samatha Rose Smith sáu um markaskorun liðsins og skoruðu þrennu hvor. 

Mark HK skoraði Hrafnhildur Salka Pálmadóttir undir lok leiks. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert