Stjarnan sótti þrjú sterk stig til Akraness þega að liðið vann ÍA, 3:1, í 16. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í dag.
Stjörnumenn eru þar með komnir með 23 stig í sjötta sæti deildarinnar en ÍA er með stigi meira í fimmta sæti.
Skagamenn fengu hættulegri færi í fyrri hálfleiknum en Stjarnan var mun meira með boltann.
Hiti færðist í leikin undir lok hálfleiksins en þá áttust Johannes Björn Vall og Örvar Eggertsson við.
Jóhann Árni Gunnarsson braut síðan á Johannesi og ÍA fékk aukaspyrnu á fyrirgjafastað. Johannes gaf boltann fyrir og þaðan barst hann alla leið á fjærstöngina þar sem Viktor Jónsson var og potaði boltanum inn, 1:0.
Viktor fékk tvö dauðafæri á sömu mínútunni, 53., en skaut tvívegis rétt fram hjá markinu.
Stjarnan jafnaði á 56. mínútu leiksins. Þá fékk Baldur Logi Guðlaugsson boltann utan teigs og smellti honum í netið. Skotið var laust en söng í netinu þar sem að Árni Marinó Einarsson markvörður ÍA stóð bara í markinu, 1:1.
Örvar Eggertsson bjargaði síðan skalla Erik Sanberg á línu á 75. mínútu með glæsibrag.
Hinum megin fékk Örvar síðan gott skotfæri stuttu seinna en setti boltan yfir markið.
Örvar var ekki hættur en á 80. mínútu kom hann Stjörnunni yfir. Þá fékk hann boltann hægra megin í teignum frá Róberti Frosta Þorkelssyni og smellti honum í fjærhornið, 2:1.
Jón Hrafn Barkarson innsiglaði sigur Stjörnunnar með laglegri afgreiðslu vinstra megin í teignum, 3:1. Þetta var hans fyrsti meistaraflokksleikur fyrir Stjörnuna.
Skagamenn heimsækja Vestra á Ísafjörð í næstu umferð eftir Verslunnarmannahelgina.
Stjarnan mætir Paide í seinni leik liðanna í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar á fimmtudaginn kemur en í næstu umferð heimsækja Garðbæingar Fram í Úlfarsárdalinn.