Omar Sowe sendi Gróttu í fallsæti

Omar Sowe var magnaður fyrir Leiknismenn í kvöld.
Omar Sowe var magnaður fyrir Leiknismenn í kvöld. mbl.is/Óttar Geirsson

Omar Sowe sá til þess að Leiknir úr Reykjavík og Grótta höfðu sætaskipti í 1. deild karla í knattspyrnu á Leiknisvellinum í Breiðholtinu í kvöld. 

Leiknir vann leikinn, 3:1, en Omar skoraði öll þrjú mörk liðsins. Þá skoraði nýi maðurinn Rasmus Christiansen mark Gróttu. 

Með sigrinum er Leiknir kominn úr fallsæti og upp í tíunda sæti með 15 stig en Grótta er í 11. og fallsæti með 13 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert