Þróttur úr Reykjavík kom til baka gegn Keflavík og vann 4:2 í 15. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í Laugardalnum í kvöld.
Þróttur er þar með 17 stig í sjöunda sæti deildarinnar en Keflavík er í tíunda og neðsta sæti með níu stig.
Keflavík komst yfir á 27. mínútu leiksins. Þá lék Melanie Forbes á Jelenu Tinnu Kujundzic og gaf boltann þvert fyrir markið.
Þaðan fór boltinn af Sóleyju Maríu Steinarsdóttur og í netið, 1:0 fyrir Keflavík.
Keflvíkingar fengu víti á 35. mínútu leiksins. Þá braut Álfheiður Rósa Kjartansdóttir á Anitu Lind Daníelsdóttur inn í teig Þróttara og Gunnar Freyr Róbertsson benti á punktinn.
Á hann steig Anita sjálf og skoraði af öryggi, 0:2.
Þróttarar minnkuðu muninn undir lok fyrri hálfleiks. Þá tók Sæunn Björnsdóttir aukaspyrnu sem fór í gegnum allan pakkann, af varnarmanni Keflavíkur og í netið, 1:2.
Síðan var komið á Maríu Evu Eyjólfsdóttur. Hún gaf boltann fyrir á 68. mínútu og þaðan skallaði Eva Lind Daníelsdóttir boltann í netið. Boltinn var hins vegar á leiðinni á markið og skráð á Maríu.
María fullkomnaði síðan endurkomu Þróttar á 79. mínútu. Þá átti Freyja Karín Þorvarðardóttir skot sem Vera Varis markvörður Keflavíkur varði. Boltinn barst síðan til Maríu Evu sem setti hann í netið af stuttu færi, 3:2.
Sigríður Th. Guðmundsdóttir innsiglaði síðan sigur Þróttar undir lok leiks með góðri afgreiðslu eftir sendingu Jelenu Tinnu, 4:2.
Þróttur heimsækir Tindastól í næstu umferð en Keflavík fær Víking í heimsókn.
Drita | 1:0 | Breiðablik |
![]() |
---|---|---|---|
1:0 - Þessu er lokið í Kósovó. Drita vinnur þetta 1:0 og er komið áfram í þriðju umferð í Sambandsdeildinni, samanlagt 3:1. Blikar úr leik. Svekkjandi. | Leik lokið